|
Úrslit á Íslandsmóti Iðn- og verkgreina 2017
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
posts
Reglur fyrir keppendur á mótsstað
- Keppendur sem koma seint í keppnina fá ekki sjálfkrafa viðbótartíma. Aftur á móti getur viðbótartími verið veittur í undantekningartilvikum af umsjónarmanni greinarinnar.
- Nema annað sé tekið fram eru engin samskipti milli keppenda, áhorfenda, eða starfsmanna keppninnar í keppninni sjálfri.
- Keppendur verða að hefja og klára vinnu þegar þeim er tilkynnt um það af umsjónarmanni.
- Keppendur eiga að fá tíma fyrir keppni þar sem farið er yfir verkefnið í upphafi keppninnar. Heimilt er að dreifa viðbótar upplýsingum um verkefnið fyrirfram af umsjónarmanni greinarinnar. Keppendur geta spurt spurninga í þessum tíma.
- Keppendur sem vilja yfirgefa keppnisstaðinn meðan keppnin er í gangi verða að fá leyfi hjá umsjónarmanni.
- Keppendur geta farið áður en keppnistíminn er liðinn en verða að lýsa því yfir að þeir hafi lokið keppni við dómara og mega ekki koma aftur inn á keppnissvæðið fyrr en dómarar hafa lokið störfum.
- Ef keppanda líður illa á einhverju stigi keppninnar, skal hann eða hún gera umsjónarmanni keppninnar viðvart svo fljótt sem verða má.
- Keppendur sem þurfa að gera við eigin verkfæri eða búnað í keppninni fá ekki viðbótartíma við lausn verkefnisins nema umsjónarmaður greinarinnar samþykki það.
- Keppendum er ekki
heimilt að taka eitthvað af eftirfarandi með á keppnisvæðið nema annað sé tekið
fram:
- Persónulegan rafeindabúnað, þ.m.t farsíma, rafrænar sígarettur, spjaldtölvur, MP3 spilara eða skriflegar minnispunkta, teikningar og sérstök hjálpartæki.
- Umsjónarmenn eiga að sjá til þess að dómgæsla verkefna sé yfir gagnrýni hafin þannig að niðurstaða verðlauna sé réttlát.
- Dómarar mega ekki ræða um dómgæslu verkefna við einstaka keppendur nema það sé hluti af niðurstöðum keppninnar.
- Ef keppanda finnst hann einhverjum ástæðum verða fyrir ósanngjarni meðferð í keppninni eða við dómgæslu verkefnis, á hann eða hún að snúa sér til umsjónarmanns keppninnar. Öll þannig mál eiga að vera leyst innan greinarinnar. Ef ekki fæst ásættanleg niðurstaða þá er hægt að kæra til keppnisstjórnar.
- Keppendur skulu nota viðeigandi fatnað og öryggisbúnað í samræmi við heilsu- og öryggisreglur, svo sem öryggisgleraugu, hanska og heyrnarhlífar.
- Öll rafmagnstæki sem keppendur eða fulltrúar koma með skulu vera viðurkennd og CE merkt. Notkun þeirra er á ábyrgð keppandans.
- Öruggum starfsvenjum viðkomandi greinar og keppnissvæðis verður að vera fylgt allan tímann af keppendum, dómurum og öðrum sem á keppnissvæðinu starfa.
- Keppendur eru ekki tryggðir af Verkiðn meðan á keppni stendur.
Mín framtíð 2019
MÍN FRAMTÍÐ 2019 – Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14. – 16. mars 2019
28 faggreinar hafa tilkynnt þátttöku á Íslandsmótinu. Keppendur munu takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Tilgangur keppna af þessu tagi er að vekja áhuga grunnskólanema og annarra á iðn- og verknámi með því að láta ungt fólk sýna handbrögð og tækni sinnar greinar. Áhorfendur munu einnig fá tækifæri til að snerta á og prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Hér gefst því upplagt tækifæri til að kynna sér spennandi starfsmöguleika í iðngreinum.
33 skólar á framhaldsskólastigi munu kynna fjölbreytt námsframboð, bæði verklegt og bóklegt, og svara spurningum um námsframboð og inntökuskilyrði. Er þetta í þriðja sinn sem framhaldsskólakynning er haldin á sama tíma og Íslandsmót iðn- og verkgreina.
Um 7000 grunnskólanemendur munu mæta á svæðið á fimmtudag og föstudag á skólatíma.
Gestir eru velkomnir á opnunartíma: Fimmtudag 14.3 og föstudag 15.3 er opið frá kl. 9 – 17.
Laugardaginn 16.3 er opið frá kl. 10 – 16.
Nánari upplýsingar veitir Elín Thorarensen, verkefnastjóri
elin@verkidn.is
Átta ungmenni frá Íslandi keppa í EuroSkills í Búdapest

Dagana 26. – 28. september 2018 fara átta keppendur frá Íslandi til Búdapest í Ungverjalandi til að keppa á EuroSkills – evrópukeppni iðn- og verkgreina. Íslensku keppendurnir eru í trésmíði, grafískri miðlun, málmsuðu, rafvirkjun, rafeindavirkjun, bakstri, framreiðslu og matreiðslu. Undirbúningur hefur staðið yfir síðan í vor og nú er komið að keppninni. Keppendurnir voru valdir af hverri grein til að keppa fyrir Íslands hönd og hafa verið undir handleiðslu þjálfara sem fer með þeim á mótið.
Verkiðn – Skills Iceland er aðili að EuroSkills og hefur verið þátttakandi á vettvangi samtakanna og systursamtakanna WorldSkills frá árinu 2007. Í ár er fjöldi þátttakenda sá mesti sem farið hefur á EuroSkills og ríkir mikil eftirvænting í hópnum.
Dýrmæt reynsla að byggja á

„Á EuroSkills eru nemar í iðnnámi að koma fram fyrir Íslands hönd og keppa í sínum iðngreinum. Keppendum gefst þarna einstakt tækifæri til að bera sig saman við kollega sína um alla Evrópu og kynnast því að standa á stóra sviðinu. Markmiðið er ekki endilega að koma heim með verðlaunapening heldur mikið frekar að vera sér og sinni iðngrein til sóma. Koma heim með dýrmæta reynslu í farteskinu til að ná enn lengra í faginu,“ segir Georg Páll Skúlason, formaður Verkiðnar.
Fylgstu með íslensku keppendunum
Hægt verður að fylgjast með íslensku keppendunum á Facebook- og Instagramsíðum Verkiðnar:
Keppnisgreinar, framhaldsskólar og aðrir sýnendur
MÍN FRAMTÍÐ 2019 – Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 14. – 16. mars 2019
Keppt verður í eftirfarandi greinum á Íslandsmóti iðn- og verkgreina 2019:
Bakaraiðn, Bifreiðasmíði, Bifvélavirkjun, Bílamálun, Blómaskreytingum, Fataiðn, Forritun, Framreiðslu, Grafískri miðlun, Gull- og silfursmíði, Hársnyrtiiðn, Hönnun vökvakerfa, Kjötiðn, Kælitækni, Leguskiptum, Matreiðslu, Málaraiðn, Málsmuðu, Múraraiðn, Pípulögnum, Rafeindavirkjun, Rafvirkjun, Skrúðgarðyrkju, Snyrtifræði og Trésmíði, Vegg- og dúkfóðrun.
Búfræði og sjúkraliðun verða sýningargreinar:
Skólar sem munu kynna námsframboð á framhaldsskólastigi:
Borgarholtsskóli, Fisktækniskóli Íslands; Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra, Fjölbrautaskóli Snæfellinga; Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskólinn við Ármúla, Flensborgarskólinn, Framhaldsskólinn á Laugum, Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu, Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ, Flugakademía Keilis, Kvennaskólinn í Reykjavík, Kvikmyndaskólinn, Lýðháskólinn á Flateyri, Menntaskólinn á Ásbrú, Menntaskólinn á Akureyri, Menntaskóli Borgarfjarðar, Menntaskólinn á Ísafirði, Menntaskólinn á Tröllaskaga, Menntaskólinn í Hamrahlíð, Menntaskólinn í Kópavogi, Menntaskólinn í Reykjavík, Menntaskólinn við Sund, Menntaskóli í tónlist, Myndlistaskólinn í Reykjavík, Stúdió Sýrland, Tækniskólinn – skóli atvinnulífsins, Verkmenntaskólinn á Akureyri, Verkmenntskóli Austurlands, Verzlunarskóli Íslands og Landbúnaðarháskóli Íslands.
Aðrir kynnendur:
BMX BRÓS, Erasmus +, FabLab Reykjavík, Fagkonur, Félag náms- og starfsráðgjafa, Iðan fræðslusetur, Heimavist MA og VMA, Iðnú, Kvasir- samtök símenntunarmiðstöðva, Samband Íslenskra framhaldsskólanema, Rafmennt. Team Spark og Verksmiðjan RÚV.
Mín framtíð 2019
Mín framtíð 2019
Íslandsmót iðn- og verkgreina 2019 Úrslit
Kælitækni
| 1 | Freydís Anna Jónsdóttir | Tækniskólinn |
| 2 | Guðlaugur Rafn Daníelsson | Fjölbrautaskóli Norðurlands Vestra |
| 3 | Guðmundur Hrafn Gnýsson | Tækniskólinn |
Hönnun vökvakerfa
| 1 | Halldór Almar Halldórsson | Tækniskólinn |
| 2 | Rafnar Berg Agnarsson | Verkmenntaskóli Akureyrar |
| 3 | Sveinn Bergsson | Fjölbrautaskóli Suðurlands |
Hársnyrtiiðn
| 1 | Hildur Ösp Gunnarsdóttir | Hárakademían |
| 2 | Laufey Guðrún Vilhjálmsdóttir | Tækniskólinn |
| 3 | Íris Birna Kristinsdóttir | Verkmenntaskóli Akureyrar |
Rafvirkjun
| 1 | Przemyslaw Patryk Slota | Verkmenntaskóli Austurlands |
| 2 | Viktor Ólason | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
| 2 | Maríanna Ragna Guðnadóttir | Tækniskólinn |
Rafeindavirkjun
| 1 | Almar Daði Björnsson | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
| 2 | Baldur Þór Jónsson | Verkmenntaskólinn á Akureyri |
| 3 | Grétar Smári Hilmarsson | Tækniskólinn |
Trésmíði
| 1 | Númi Kárason | Tækniskólinn |
| 2 | Fannar Ingi Arnbjörnssn | Fjölbrautaskóli Suðurnesja |
| 3 | Jón Arnar Pétursson | Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra |
Málmsuða
| 1 | Jón Gylfi Jónsson | Fjölbrautaskóli Norðulands Vestra |
| 2 | Andri Már Ólafsson | Verkmenntaskóli Akureyrar |
| 3 | Bartlomiej Lacek | Fjölbrautaskóli Suðurlands |
Skrúðgarðyrkja
| 1 | Arnar Þór Hjaltason | Landbúnaðarháskóli Íslands |
| 2 | Svandís Böðvarsdóttir | Landbúnaðarháskóli Íslands |
| 3 | Árni Rúnarsson | Landbúnaðarháskóli Íslands |
| 3 | Benedikt Örvar Smárason | Landbúnaðarháskóli Íslands |
Framreiðsla
| 1 | Óliver Goði Dýrfjörð | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 2 | Fanney Rún Ágústsdóttir | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 3 | Jóhannes Páll Sigurðsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
Pípulagnir
| 1 | Kristófer Daði Kárason | Tækniskólinn |
| 2 | Davíð Karlsson | Tækniskólinn |
| 2 | Geiri Ragnarsson | Tækniskólinn |
| 2 | Kristján Árni Ívarsson | Tækniskólinn |
Fataiðn sérnám
| 1 | Elísabet Katrín Mason | Tækniskólinn |
| 2 | Ólöf Arna Gunnarsdóttir | Tækniskólinn |
Fatatæknir
| 1 | Sólrún Silja Rúnarsdóttir | Tækniskólinn |
| 2 | Nína Guðrún Gunnlaugsdóttir | Tækniskólinn |
Gull- og silfursmíði
| 1 | Hildur Ósk Sigurðardóttir | Tækniskólinn |
| 2 | Aron Ingvar Ásdísarson | Tækniskólinn |
| 3 | Ólöf Arnarsdóttir | Tækniskólinn |
Málaraiðn
| 1 | Guðrún Blöndal | Tækniskólinn |
| 2 | Ívar Örn Valgeirsson | Tækniskólinn |
| 2 | Úlfar Birnir Heiðarsson | Tækniskólinn |
Bifreiðasmíði
| 1 | Sölvi Bjarnason | Borgarholtsskóli |
| 2 | Gabríel Erik Sveinsson | Borgarholtsskóli |
| 3 | Gretar Bíldsfells Guðmundsson | Borgarholtsskóli |
Bifvélavirkjun
| 1 | Alexander Þórðarson | Borgarholtsskóli |
| 2 | Þórunn Anna Orradóttir | Borgarholtsskóli |
| 3 | Úlfar Alexandre Rist | Borgarholtsskóli |
Bílamálun
| 1 | Samúel Þór Sölvason | Borgarholtsskóli |
| 2 | Diogo Meireles Da Silva | Borgarholtsskóli |
| 3 | Stefán Óli Ásgrímsson | Borgarholtsskóli |
Blómaskreytingar
| 1 | Tinna Bjarnadóttir | LBHÍ Reykjum |
| 2 | Hanna Heiður Bjarnadóttir | LBHÍ Reykjum |
| 3 | Stella Guðnadóttir | LBHÍ Reykjum |
Forritun
| 1 | Kacper Zuromski | Fjölbrautaskóli Suðurnesja |
| 2 | Guðmundur Freyr Ellertsson | Menntaskólinn í Reykjavík |
| 3 | Freyr Hlynsson | Menntaskólinn í Reykjavík |
Grafísk miðlun
| 1 | Eyvindur Einar Guðnason | Tækniskólinn |
| 2 | Jón Egill Hafsteinsson | Tækniskólinn |
Bakaraiðn
| 1 | Aðalheiður Dögg Reynisdóttir | Bláa lónið |
| 2 | Viktor Ingason | IKEA |
| 3 | Eyþór Andrason | Bakarameistarinn |
Kjötiðn
| 1 | Dominik Henryk Przybyla | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 2 | Sævar Jóhannesson | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 3 | Alex Tristan Gunnþórsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
Leguskipti
| 1 | Kristján Karl Einarsson | Tækniskólinn |
| 2 | Ingvar Geir Guðmundsson | Tækniskólinn |
Múraraiðn
| 1 | Ívar Orri Guðmundsson | Tækniskólinn |
| 2 | Nikola Alexander Pjevic | Tækniskólinn |
| 2 | Aðalbjörn Jóhannsson | Tækniskólinn |
Veggfóðrun og Dúklagning
| 1 | Daníel Guðnason | Tækniskólinn |
| 2 | Róbert Rafn Guðnason | Tækniskólinn |
| 2 | Þórir Bjarni Þorbergsson | Tækniskólinn |
Matreiðsla
| 1 | Sindri Guðbrandur Sigurðsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 2 | Sigþór Daði Kristinsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
| 3 | Guðmundur Jónsson | Menntaskólinn í Kópavogi |
Snyrtifræði
| 1 | Magnea Óskarsdóttir | Fjölbrautaskólinn Breiðholti |
| 2 | Ásdís Elva Kjartansdóttir | Fjölbrautaskólinn Breiðholti |
| 3 | Anita Lence | Fjölbrautaskólinn Breiðholti |
Vefþróun
Liðakeppni
| 1 | Hugrún Rúnarsdóttir og | Tækniskólinn |
| 1 | Nikulás Óskarsson | Tækniskólinn |
| 2 | Anton Örn Kærnested | Tækniskólinn |
| 2 | Brynja Guðmundsdóttir | Tækniskólinn |
| 2 | Hákon Arnar Sigurðsson | Tækniskólinn |
| 3 | Jakob Daníel Vigfússon | Fjölbrautaskóli Suðurnesja |
| 3 | Richard Dawson Woodhead | Fjölbrautaskóli Suðurnesja |
Mín framtíð – Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning fer fram 2023
Nú höfum við kannað stöðuna hjá nemendum, skólum og tengiliðum faggreina og niðurstaðan er sú að lítið svigrúm er til þess að sinna verkefnum sem snúa að Íslandsmóti iðn- og verkgreina og kynningu á framhaldsskólum sem fara átti fram dagana 31. mars – 2. apríl nk.
Mörg verkefni hafa fallið niður í þessum hópum vegna sóttvarnarráðstafana, veikinda og samkomutakmarkana og við viljum því sýna sveigjanleika og ábyrgð og fresta mótinu til næsta árs. Við hlökkum til samstarfs við ykkur að ári.
Bestu kveðjur,
Stjórn Verkiðnar
Rússland útilokað frá WorldSkills Europe
Rússar fá ekki að halda Euroskills árið 2023 í Sankti Pétursborg.
Rússland er útilokað frá Worldskills Europe og fær ekki að halda EuroSkills árið 2023 í Sankti Pétursborg. Mótið verður haldið í annarri evrópskri borg og kemur staðsetningin í ljós á allra næstu dögum. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi Worldskills Europe 28. febrúar 2022.
„Það er mikilvægt að taka afstöðu gegn innrás Rússa í Úkraínu og við styðjum samtökin fullkomlega í þeirri ákvörðun að svipta Rússa réttinum til að halda EuroSkills árið 2023 í Sankti Pétursborg,“ segir Georg Páll Skúlason formaður Verkiðnar, Skills Ísland.
Bæði Rússland og Hvíta-Rússland eru útilokuð frá þátttöku í alþjóðlegum keppnum á vegum Euroskills og Worldskills vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Löndin tvö hafa einnig verið svipt aðild að samtökunum. Sjá hér.
Mín framtíð 2023 í Laugardalshöll
Dagana 16. – 18. mars 2023 mun Verkiðn halda Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynningu í Laugardalshöllinni í samvinnu við mennta- og barnamálaráðuneytið, sveitarfélög og fagfélög iðn- og starfsgreina.
Undirbúningur undir mótið er í fullum gangi. Í vikunni voru send út upplýsinga- og boðsbréf til ráðamanna sem tengjast málaflokknum, til fagfélaganna og grunn- og framhaldsskóla.
Við hlökkum til að starfa með ykkur og vonumst eftir góðri þátttöku.
Lilja Sæmundsdóttir framkvæmdastjóri mótsins, Inga Birna Antonsdóttir og Kristjana Guðbrandsdóttir verkefnastjórar.
Keppt í 22 faggreinum
MÍN FRAMTÍÐ Íslandsmót iðn- og verkgreina og framhaldsskólakynning verður haldin í Laugardalshöll dagana 16. – 18. mars.
22 faggreinar hafa tilkynnt þátttöku á Íslandsmótinu. Keppendur takast á við krefjandi og raunveruleg verkefni í samkeppni sem reynir á hæfni, skipulagshæfileika og fagmennsku. Keppendur, sem eru yngri nemendum fyrirmyndir, segjast fá aukinn skilning á faginu og náminu, auka tæknilega hæfni og meiri metnað gagnvart faginu. Sigur á Íslandi getur gefið möguleika á að fara og keppa í Evrópu á Euroskills en næsta keppni fer fram í Gdansk í september 2023.
Áhorfendur munu einnig fá tækifæri til að snerta á og prófa hluti undir handleiðslu fagmanna í ýmsum greinum. Hér gefst því upplagt tækifæri til að kynna sér spennandi starfsmöguleika í iðngreinum.
Mótið og þessi sameiginlega framhaldsskólakynning hefur verið haldin annað hvert ár frá árinu 2007 fyrir tilstilli Verkiðnar sem eru íslensk systursamtök Evrópsku Skills samtakanna sem eru aðili að WorldSkills International.
27 skólar á framhaldsskólastigi munu kynna fjölbreytt námsframboð, bæði verklegt og bóklegt, og svara spurningum um námsframboð og inntökuskilyrði.
Um 7-8000 grunnskólanemendur munu mæta á svæðið á fimmtudag og föstudag á skólatíma.
Gestir eru velkomnir á opnunartíma: Fimmtudag 16.3 og föstudag 17.3 er opið frá kl. 9 – 16.
Laugardaginn 18.3 er opið frá kl. 10 – 15.
Fylgstu með okkur á www.namogstorf.is/minframtid
Umfjöllun og kynning á Íslandsmótinu og framhaldsskólakynningunni Mín framtíð 2023 fer fram á heimasíðunni www.námogstörf.is. Þar verða birt myndskeið sem tengjast keppninni og keppendum auk fræðslu um nám í faggreinunum.
Fyrir nánari upplýsingar:
Til hamingju sigurvegarar ´Íslandsmóts iðn- og verkgreina 2023!
Til hamingju sigurvegarar á Íslandsmóti iðn- og verkgreina 2023 og kærar þakkir til allra keppenda sem stóðu sig með sóma!
Bakaraiðn, Finnur Guðberg Ívarsson, Bláa Lónið
Bifreiðasmíði, Sólborg Birta Steinbergsdóttir, Borgarholtsskóli
Bílamálun, Sara Gígja Geirsdóttir, Borgarholtsskóli
Forritun, Bjartur Sigurjónsson,Tækniskólinn
Grafísk miðlun, Olivier Piotr Lis, Tækniskólinn
Gull- og silfursmíði,Benedikt Axelsson, Tækniskólinn
Húsasmíði,Van Huy Nguyen,Tækniskólinn
Kjötiðn, Björn Mikael Karelsson, Hótel og veitingaskólinn
Fataiðn,Vilborg Magnúsdóttir,Tækniskólinn
Málaraiðn,Hildur Magnúsd. Eyrúnardóttir,Tækniskólinn
Málmsuða,Hafþór Karl Barkarson,VMA
Múraraiðn,Arnar Freyr Guðmundsson,Tækniskólinn
Pípulagnir,Ezekiel Jakob Hansen,Tækniskólinn (Útskrifaður)
Rafeindavirkjun,Hlynur Karlsson,Tækniskólinn
Rafvirkjun,Gunnar Guðmundsson, Tækniskólinn
Snyrtifræði, Kristín Ýr Gísladóttir, Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Skrúðgarðyrkja, Ólafur Sverrir Gunnarsson, FSU
Liðakeppni í Vefþróun, Gabríel Bergmann Friðriksson, Tækniskólinn, Shishir Jayendra Patel, Tækniskólinn og Sebastian Mateusz Lenart, Tækniskólinn.
Veggfóðrun og dúkalögn, Magnús Breki Þórarinsson, Tækniskólinn
Framreiðsla, Finnur Gauti Vilhelmsson, VOX Brasserí
Hársnyrtiiðn, Irena Fönn Clemmensen, Verkmenntaskólinn á Akureyri




